Gjöf frá kvenfélaginu Vöku

Kvenfélagið Vaka gaf leikskólabörnunum skemmtilegt leikefni sem hægt er að nota á fjölbreyttan hátt. Í pakkanum voru mjúkir svampkubbar sem hægt er að leika sér með og byggja úr enda eru þeir í allskonar lögun og stærð. Þá fengum við tvö sett af MODU kubbum en þessir kubbar eru með endalausa möguleika og tilvaldir fyrir opinn leik og skapandi hugsun. Krakkarnir geta leyft ímyndunaraflinu að njóta sín þar sem hægt er að setja saman allskonar útfærslur með pinnum og hjólum sem fylgja með. Að endingu er það svo segulkubbarnir þar sem hægt er að setja saman á fjölbreyttan hátt. Eitt settið er kúlubraut en hitt settið eru segulkubbar þar sem hægt er að byggja allskonar stóra og smáa hluti.

Við þökkum kvenfélagskonum kærlega fyrir þessa höfðinglegu gjöf sem mun nýtast leikskólanum vel í opnu og skapandi starfi með börnunum.


Fréttamynd - Gjöf frá kvenfélaginu Vöku Fréttamynd - Gjöf frá kvenfélaginu Vöku Fréttamynd - Gjöf frá kvenfélaginu Vöku

Smellið á myndir til að sjá þær í stærri upplausn